Laugavegur 20B

Verknúmer : BN045695

723. fundur 2013
Laugavegur 20B, 2.h.flóttaleiðir og innra frkl.
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir tveimur svölum með flóttastigum á vesturhlið annarrar hæðar, síkka glugga á vestur- og suðurhlið, breyta innra fyrirkomulagi og endurinnrétta veitingastað í veitingaflokki II á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 20B við Laugaveg.
Jafnframt er erindi BN045406 er dregið til baka.
Sjá einnig erindi BN045406.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. janúar 2013 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2013 fylgdu erindi BN045406.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. janúar 2013 og umsögn Borgarminjavarðar dags. 8. febrúar 2012 fylgja erindinu.
Bréf hönnuðar dags. 25. janúar 2013 fylgja erindinu.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 15 janúar 2013 fylgir erindinu.
Greinargerð um brunavarnir dags. 16. janúar 2013 fylgir erindinu.
Samþykki eigenda Laugavegar 20A (á teikn. og í tölvupósti dags. 25. janúar 2013) fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


722. fundur 2013
Laugavegur 20B, 2.h.flóttaleiðir og innra frkl.
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir tveimur svölum með flóttastigum á vesturhlið annarrar hæðar, síkka glugga á vestur- og suðurhlið, breyta innra fyrirkomulagi og endurinnrétta veitingastað í veitingaflokki II á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 20B við Laugaveg.
Jafnframt er erindi BN045406 er dregið til baka.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. janúar 2013 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2013 fylgdu erindi BN045406.
Umsagnir Minjastofnunar Íslands dags. 25. janúar 2013 og umsögn Borgarminjavarðar dags. 8. febrúar 2012 fylgja erindinu.
Bréf hönnuðar dags. 25. janúar 2013 fylgja erindinu.
Greinargerð um brunavarnir dags. 16. janúar 2013 fylgir erindinu.
Samþykki eigenda Laugavegar 20A (á teikn. og í tölvupósti dags. 25. janúar 2013) fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000


Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.