Þingholtsstræti 21

Verknúmer : BN045586

748. fundur 2013
Þingholtsstræti 21, Pallur, útitröppur og útihurðir
Sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. apríl 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags, 1. mars 2013. Erindið var grenndarkynnt frá 7. mars til og með 8. apríl 2013. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

740. fundur 2013
Þingholtsstræti 21, Pallur, útitröppur og útihurðir
Sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. apríl 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags, 1. mars 2013. Erindið var grenndarkynnt frá 7. mars til og með 8. apríl 2013. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

737. fundur 2013
Þingholtsstræti 21, Pallur, útitröppur og útihurðir
Sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. apríl 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags, 1. mars 2013. Erindið var grenndarkynnt frá 7. mars til og með 8. apríl 2013. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

726. fundur 2013

438. fundur 2013
Þingholtsstræti 21, Pallur, útitröppur og útihurðir
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2013. Erindi var grenndarkynnt frá 7. mars til og með 8. apríl 2013. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013. Gjald kr. 9.000

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

433. fundur 2013
Þingholtsstræti 21, Pallur, útitröppur og útihurðir
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. febrúar 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2013.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013.
Gjald kr. 9.000

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ingólfsstræti 18 , 20 og Þingholtsstræti 17, 18 og 22.

432. fundur 2013
Þingholtsstræti 21, Pallur, útitröppur og útihurðir
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013.
Gjald kr. 9.000

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra.

719. fundur 2013
Þingholtsstræti 21, Pallur, útitröppur og útihurðir
Sótt er um leyfi til að byggja pall við norðausturhlið, gera nýjar dyr úr hjólageymslu á götuhæð, skipta í tvær íbúðir og færa til upprunalegs horfs útlit einbýlishúss á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Minjastofnunar Íslands dags. 15. febrúar 2013.
Gjald kr. 9.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.