Rauðarárstígur 1

Verknúmer : BN045413

715. fundur 2013
Rauðarárstígur 1, (fsp) - Breyta verslun í íbúðir
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta verslunarrými í tvær íbúðir í húsinu á lóð nr. 1 við Rauðarárstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. janúar 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2013.

Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2013.


427. fundur 2013
Rauðarárstígur 1, (fsp) - Breyta verslun í íbúðir
Á fundi skipulagsfulltrúa frá 11. janúar 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. janúar 2012 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að breyta verslunarrými í tvær íbúðir í húsinu á lóð nr. 1 við Rauðarárstíg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2013

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.16. janúar 2013

426. fundur 2013
Rauðarárstígur 1, (fsp) - Breyta verslun í íbúðir
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. janúar 2012 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að breyta verslunarrými í tvær íbúðir í húsinu á lóð nr. 1 við Rauðarárstíg.

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra.

713. fundur 2013
Rauðarárstígur 1, (fsp) - Breyta verslun í íbúðir
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta verslunarrými í tvær íbúðir í húsinu á lóð nr. 1 við Rauðarárstíg.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.