Hverfisgata 50

Verknúmer : BN045367

712. fundur 2012
Hverfisgata 50, Klæðning, breyting á BN044150
Sótt er um leyfi til að breyta klæðningu utanhúss, sbr. nýsamþykkt erindi BN044150, sem felst í að álklæða í stað þess að múrhúða veggi milli glugga í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 50 við Hverfisgötu.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.