Krókháls 9

Verknúmer : BN045318

710. fundur 2012
Krókháls 9, Endurnýjun - BN043725
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN043725, þar sem veitt var leyfi til að byggja geymslu við kjallara og uppfæra smávægilegar breytingar á gluggaveggjum, þakgluggum og inntaksrými sbr. erindi BN035743 samþykkt 26. júní 2007 í bifreiðasölu og verkstæði á lóð nr. 9 við Krókháls.
Stækkun: 187 ferm., 99,1 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.424


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.