Pósthússtræti 13-15

Verknúmer : BN045120

710. fundur 2012
Pósthússtræti 13-15, Endurnýjun BN042650
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN042650 dags. 15. mars 2011, þar sem veitt var leyfi til að breyta eignarhluta 0202 merkt skrifstofa, í tvær íbúðir merktar 0202 og 0203, til að síkka glugga og byggja tvennar svalir á 2. hæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 13 við Pósthússtræti.
Samþykki frá lögboðuðum húsfundi dags. 15. Nóv. 2012
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


706. fundur 2012
Pósthússtræti 13-15, Endurnýjun BN042650
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN042650 dags. 15. mars 2011, þar sem veitt var leyfi til að breyta eignarhluta 0202 merkt skrifstofa, í tvær íbúðir merktar 0202 og 0203, til að síkka glugga og byggja tvennar svalir á 2. hæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 13 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.