Sægarðar 3

Verknúmer : BN045098

708. fundur 2012
Sægarðar 3, Viðbygging mhl.01
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á einni hæð við mhl. 01 ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum stækkunum (milliloftum) í atvinnuhúsi á lóð nr. 3 við Sægarða.
Áður gerð stækkun: 362,1 ferm.
Viðbygging: 791,5 ferm., 8.891,3 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 755.761

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


707. fundur 2012
Sægarðar 3, Viðbygging mhl.01
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á einni hæð við mhl. 01 á lóð nr. 3 við Sægarða.
Áður gerð stækkun: 362,1 ferm.
Viðbygging: 791,5 ferm., 8.891,3 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 755.761

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


705. fundur 2012
Sægarðar 3, Viðbygging mhl.01
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á einni hæð við mhl.01 á lóð nr. 3 við Sægarða.
Stækkun: 791,5 ferm., 8.891,3 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 755.761
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.