Hólmgarður 38

Verknúmer : BN045068

719. fundur 2013
Hólmgarður 38, Rishæð og svalir
Sótt er um leyfi til þess að hækka rishæð og koma fyrir svölum á annarri og þriðju hæð suðurhliðar hússins á lóðinni nr. 36 við Hólmgarð.
Samþykki meðeigenda dags. 08.10.2012 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun rishæð 54,9 ferm. og 106,9 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 9.087

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


708. fundur 2012
Hólmgarður 38, Rishæð og svalir
Sótt er um leyfi til þess að hækka rishæð, byggja steinsteypta anddyrisviðbyggingu að norðurhlið og koma fyrir svölum á annarri og þriðju hæð suðurhliðar hússins á lóðinni nr. 36 við Hólmgarð.
Samþykki meðeigenda dags. 08.10.2012 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun rishæð og viðbygging 60,1 ferm. og 134,4 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 11.424

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


704. fundur 2012
Hólmgarður 38, Rishæð og svalir
Sótt er um leyfi til þess að hækka rishæð, byggja steinsteypta anddyrisviðbyggingu að norðurhlið og koma fyrir svölum á suðurhlið annarrar hæðar hússins á lóðinni nr. 38 við Hólmgarð.
Samþykki meðeigenda dags. 08.10.2012 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun rishæð og viðbygging 6,1 ferm. og 134,4 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 11.424
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.