Suðurgata 33

Verknúmer : BN044842

695. fundur 2012
Suðurgata 33, Gróðurhús
Sótt er um leyfi til þess að staðsetja 2,5 ferm. gróðurhús (matshl. 05) úr gleri og áli austan við húsið á lóðinni nr. 33 við Suðurgötu.
Samþykki meðlóðarhafa og samþykki nágranna í húsi nr. 31 við Suðurgötu, bæði dags. 25.07.2012 fylgja erindinu.
Stærð: Gróðurhús, matshluti 05, 2,5 ferm. og 4,8 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 408
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Vakin er athygli á að framkvæmd þarfnast ekki byggingarleyfis samkvæmt gr. 2.3.5 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.