Hverfisgata 21

Verknúmer : BN044782

695. fundur 2012
Hverfisgata 21, Gistihús
Sótt er um leyfi til að breyta að utan og innan, sbr. fyrirspurn BN044676, húsi Jóns Magnússonar og bókagerðarmanna, sem byggt var úr steinsteypu með timburgólfum árið 1912 og er tveggja hæða með kjallara og þakhæð í 10 eininga gististað í fl. II, tegund b, og sem stendur á lóð nr. 21 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. júlí 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 6. júní 2012 fylgdu fyrirspurnarerindi BN044676 vegna gistihúss að Hverfisgötu 21.
Meðfylgjandi er umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 13. júlí 2012, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 31.7. 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 9.7. 2012.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


693. fundur 2012
Hverfisgata 21, Gistihús
Sótt er um leyfi til að breyta að utan og innan, sbr. fyrirspurn BN044676, húsi Jóns Magnússonar og bókagerðarmanna, sem byggt var úr steinsteypu með timburgólfum árið 1912 og er tveggja hæða með kjallara og þakhæð í 10 eininga gististað í fl. II, tegund b, og sem stendur á lóð nr. 21 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. júlí 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 6. júní 2012 fylgdu fyrirspurnarerindi BN044676 vegna gistihúss að Hverfisgötu 21.
Meðfylgjandi er umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 13.7. 2012.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.