Langholtsvegur 154

Verknúmer : BN044703

691. fundur 2012
Langholtsvegur 154, (fsp) - Bílskúr
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr á kjallara við einbýlishús á lóð nr. 154 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. júlí 2012 fylgir erindinu.

Jákvætt.
Ekki er gerð athugasemd við byggingu bílskúrs en ekki er gert ráð fyrir kjallara undir skúrnum samanber umsögn skipulagsstjóra dags. 06. júlí 2012. Sækja þarf um byggingarleyfi.


402. fundur 2012
Langholtsvegur 154, (fsp) - Bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. júlí 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr með kjallara við einbýlishús á lóð nr. 154 við Langholtsveg.
Ekki er gerð athugasemd við byggingu bílskúrs í samræmi við deiliskipulag Vogahverfis samþykkt 14.október 2010. Ekki er gert ráð fyrir kjöllurum undir bílskúrum.

690. fundur 2012
Langholtsvegur 154, (fsp) - Bílskúr
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr á kjallara við einbýlishús á lóð nr. 154 við Langholtsveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.