Brekkustígur 15

Verknúmer : BN044629

695. fundur 2012
Brekkustígur 15, Veggsvalir á suðurhlið
Sótt er um leyfi til að byggja veggsvalir á suðurhlið og breyta gluggum á 2. hæð suður og 1. hæð austur í dyr á einbýlishúsi á lóð nr. 15 við Brekkustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. ágúst 2012 fylgir erindinu. Grenndarkynning stóð frá 28. júní til og með 26. júlí 2012. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


406. fundur 2012
Brekkustígur 15, Veggsvalir á suðurhlið
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júní 2012 þar sem sótt er um leyfi til að byggja veggsvalir á suðurhlið og breyta gluggum á 2. hæð suður og 1. hæð austur í dyr á einbýlishúsi á lóð nr. 15 við Brekkustíg. Grenndarkynning stóð frá 28. júní til og með 26. júlí 2012. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


690. fundur 2012
Brekkustígur 15, Veggsvalir á suðurhlið
Sótt er um leyfi til að byggja veggsvalir á suðurhlið og breyta gluggum á 2. hæð suður og 1. hæð austur í dyr á einbýlishúsi á lóð nr. 15 við Brekkustíg.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Grenndarkynningu ólokið.


400. fundur 2012
Brekkustígur 15, Veggsvalir á suðurhlið
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júní 2012 þar sem sótt er um leyfi til að byggja veggsvalir á suðurhlið og breyta gluggum á 2. hæð suður og 1. hæð austur í dyr á einbýlishúsi á lóð nr. 15 við Brekkustíg.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Brekkustíg 17

688. fundur 2012
Brekkustígur 15, Veggsvalir á suðurhlið
Sótt er um leyfi til að byggja veggsvalir á suðurhlið og breyta gluggum á 2. hæð suður og 1. hæð austur í dyr á einbýlishúsi á lóð nr. 15 við Brekkustíg.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynninu. Vísað er til teikninga nr. 1.0, 1.1 og 1.2 dags. 11. júní 2012.