Laufásvegur 66

Verknúmer : BN044581

689. fundur 2012
Laufásvegur 66, Fjarlægja glerskála ofl.
Sótt er um leyfi til þess að fjarlægja glerskála á suðurhlið húss, stækka bílskúrshurð, stækka glugga í borðstofu á fyrstu hæð, steypa í dyraop á suðurhlið og breyta innra fyrirkomulagi á fyrstu og annarri hæð hússins á lóðinni nr. 66 við Laufásveg.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 04.06.2012 fylgir erindinu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu
Stærð: Vegna niðurrifs glerskála minnkar húsið um 25,6 ferm. og 67,2 rúmm. (sbr. erindi BN033664) og verður eftir breytinguna skráð 301,3 ferm. og 863,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


687. fundur 2012
Laufásvegur 66, Fjarlægja glerskála ofl.
Sótt er um leyfi til þess að stækka bílskúrshurð, fjarlægja glerskála á suðurhlið húss, stækka glugga í borðstofu á fyrstu hæð, steypa í dyraop á suðurhlið og breyta innra fyrirkomulagi á fyrstu og annarri hæð hússins á lóðinni nr. 66 við Laufásveg.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 04.06.2012 fylgir erindinu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu
Stærð: Vegna niðurrifs glerskála minnkar húsið um 25,6 ferm. og 67,2 rúmm. (sbr. erindi BN033664) og verður eftir breytinguna skráð 302,0 ferm. og 932,9 rúmm.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.