Krummahólar 6

Verknúmer : BN044579

689. fundur 2012
Krummahólar 6, Klæðning efsta hæð, svalahandrið
Sótt er um leyfi til að setja klæðningu á 7. hæð og fjarlægja steypt svalahandrið og setja upp létt svalahandrið á suðurhlið, lágmarkshæð 1200 mm. á fjölbýlishúsið á lóð nr. 6 við Krummahóla.
Meðfylgjandi er fundargerð húsfundar þann 23. feb. 2012. Þar sem klæning og ný svalahandrið á suðurhlið eru samþykkt. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 13. júní 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


687. fundur 2012
Krummahólar 6, Klæðning efsta hæð, svalahandrið
Sótt er um leyfi til að setja klæðningu á 7. hæð og fjarlægja steypt svalahandrið og setja upp létt svalahandrið á suðurhlið, lágmarkshæð 1200 mm. á fjölbýlishúsið á lóð nr. 6 við Krummahóla.
Meðfylgjandi er fundargerð húsfundar þann 23. feb. 2012. Þar sem klæðning og ný svalahandrið á suðurhlið eru samþykkt.
Gjald kr. 8.500.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.