Skólavörðustígur 13

Verknúmer : BN044565

691. fundur 2012
Skólavörðustígur 13, Svalir á 2. hæð
Í framhaldi af fyrirhuguðu niðurrifi tengibyggingar milli húsanna nr. 11 og 13 við Skólavörðustíg (sbr. erindi BN044577 og erindi BN044625) er sótt um leyfi til þess að byggja svalir á norðurhlið (bakhlið) annarrar hæðar hússins nr. 13 á lóðinni nr. 13-13A við Skólavörðustíg.
Samþykki eiganda lóðarinnar Skólavörðustígur 11 dags. 01.06.2012 fylgir erindinu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Þinglýstur kaupsamningur innfærður í febrúar 2002 (dagsetning er ólæsileg) fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500 + 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Þinglýsa skal samþykki eigenda Skólavörðustígs 11 vegna svala, fyrir útgáfu byggingarleyfis.


688. fundur 2012
Skólavörðustígur 13, Svalir á 2. hæð
Í framhaldi af fyrirhuguðu niðurrifi tengibyggingar milli húsanna nr. 11 og 13 við Skólavörðustíg (sbr. fyrirspurnarerindi BN044510 og erindi BN044577) er sótt um leyfi til þess að byggja svalir á norðurhlið (bakhlið) annarrar hæðar hússins nr. 13 á lóðinni nr. 13-13A við Skólavörðustíg.
Samþykki eiganda lóðarinnar Skólavörðustígur 11 dags. 01.06.2012 fylgir erindinu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Þinglýstur kaupsamningur innfærður í febrúar 2002 (dagsetning er ólæsileg) fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500

Frestað.


686. fundur 2012
Skólavörðustígur 13, Svalir á 2. hæð
Í framhaldi af fyrirhuguðu niðurrifi tengibyggingar milli húsanna nr. 11 og 13 við Skólavörðustíg (sbr. fyrirspurnarerindi BN044510 og erindi BN044577) er sótt um leyfi til þess að byggja svalir á norðurhlið (bakhlið) annarrar hæðar hússins nr. 13 á lóðinni nr. 13-13A við Skólavörðustíg.
Samþykki eiganda lóðarinnar Skólavörðustígur 11 dags. 01.06.2012 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.