Stakkhamrar 7

Verknúmer : BN044527

687. fundur 2012
Stakkhamrar 7, (fsp) - Stækkun byggingarreits
Spurt er hvort leyft yrði að stækka bílgeymslu með því að stækka um tvo metra til suðausturs byggingarreit einbýlishússins á lóðinni nr. 7 við Stakkhamra.
Samþykki nágranna í húsum nr. 3, 5, 9 og 17 við Stakkhamra (á teikn.) fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. júní 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 8. júní 2012.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 8. júní 2012.


398. fundur 2012
Stakkhamrar 7, (fsp) - Stækkun byggingarreits
Á fundi skipulagsstjóra var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. maí 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að stækka bílskúr með því að stækka um tvo metra til suðausturs byggingarreit einbýlishússins á lóðinni nr. 7 við Stakkhamra. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 8. júní 2012. Samþykki nágranna í húsum nr. 3, 5, 9 og 17 við Stakkhamra (á teikn.) fylgir erindinu.
Neikvætt. Samræmist ekki deiliskipulagi með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 8. júní 2012.

397. fundur 2012
Stakkhamrar 7, (fsp) - Stækkun byggingarreits
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. maí 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að stækka bílskúr með því að stækka um tvo metra til suðausturs byggingarreit einbýlishússins á lóðinni nr. 7 við Stakkhamra.
Samþykki nágranna í húsum nr. 3, 5, 9 og 17 við Stakkhamra (á teikn.) fylgir erindinu.

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra.

685. fundur 2012
Stakkhamrar 7, (fsp) - Stækkun byggingarreits
Spurt er hvort leyft yrði að stækka bílskúr með því að stækka um tvo metra til suðausturs byggingarreit einbýlishússins á lóðinni nr. 7 við Stakkhamra.
Samþykki nágranna í húsum nr. 3, 5, 9 og 17 við Stakkhamra (á teikn.) fylgir erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.