Brúnavegur 13

Verknúmer : BN044394

681. fundur 2012
Brúnavegur 13, Síkka glugga á 1. hæð
Sótt er um leyfi til að síkka glugga á 1. hæð í A álmu á suðurhlið og breyta vindfangi á 1. hæð við E álmu og saga niður úr glugga í Dvalarheimilinu Hrafnistu á lóð nr. 13 við Brúnaveg.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 17. apríl. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.