Fjólugata 13

Verknúmer : BN044299

682. fundur 2012
Fjólugata 13, Endurnýjun BN038946
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038946 dags. 21 júlí 2009 þar sem sótt er um að byggja bílskúr, til að byggja nýtt anddyri á norðurhlið, koma fyrir nýjum gluggum á austurhlið kjallara, grafa frá kjallara og síkka glugga á vesturhlið og til að breyta innra skipulagi og gluggagerð einbýlishússins nr. 13 við Fjólugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. maí 2012 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynt frá 20. apríl til og með 22. maí 2012 en það sem samþykki hagsmunaaðila barst 3. maí 2012 er erindið nú lagt fram að nýju.
Viðbygging: 18,3 ferm., 49,5 rúmm. Bílskúr: 38 ferm. 112,7 rúmm. Samtals stækkun: 56,3 ferm., 162,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 13.787

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


393. fundur 2012
Fjólugata 13, Endurnýjun BN038946
Að lokinni grenndarkynningur er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. apríl 2012 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038946 dags. 21 júlí 2009 þar sem sótt er um að byggja bílskúr, til að byggja nýtt anddyri á norðurhlið, koma fyrir nýjum gluggum á austurhlið kjallara, grafa frá kjallara og síkka glugga á vesturhlið og til að breyta innra skipulagi og gluggagerð einbýlishússins nr. 13 við Fjólugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 20. apríl til og með 22. maí 2012 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 3. maí 2012 er erindi nú lagt fram að nýju. Viðbygging: 18,3 ferm., 49,5 rúmm. Bílskúr: 38 ferm. 112,7 rúmm. Samtals stækkun: 56,3 ferm., 162,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 13.787
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


390. fundur 2012
Fjólugata 13, Endurnýjun BN038946
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. apríl 2012 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038946 dags. 21 júlí 2009 þar sem sótt er um að byggja bílskúr, til að byggja nýtt anddyri á norðurhlið, koma fyrir nýjum gluggum á austurhlið kjallara, grafa frá kjallara og síkka glugga á vesturhlið og til að breyta innra skipulagi og gluggagerð einbýlishússins nr. 13 við Fjólugötu. Viðbygging: 18,3 ferm., 49,5 rúmm. Bílskúr: 38 ferm. 112,7 rúmm. Samtals stækkun: 56,3 ferm., 162,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 13.787

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fjólugötu 11a og 15, Laufásvegi 44 og Sóleyjargötu 11 og 13.

679. fundur 2012
Fjólugata 13, Endurnýjun BN038946
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038946 dags. 21 júlí 2009 þar sem sótt er um að byggja bílskúr, til að byggja nýtt anddyri á norðurhlið, koma fyrir nýjum gluggum á austurhlið kjallara, grafa frá kjallara og síkka glugga á vesturhlið og til að breyta innra skipulagi og gluggagerð einbýlishússins nr. 13 við Fjólugötu. Viðbygging: 18,3 ferm., 49,5 rúmm. Bílskúr: 38 ferm. 112,7 rúmm. Samtals stækkun: 56,3 ferm., 162,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 13.787

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 1.01-1.04 dags. 19. maí 2009.