Sundlaugavegur 30

Verknúmer : BN044216

675. fundur 2012
Sundlaugavegur 30, Göngubrú
Sótt er um leyfi til að endurbyggja í sömu mynd með hitalögn, tartanyfirborði og nýrri hönnun handriða göngubrú yfir Laugardalslaug á lóð nr. 30 við Sundlaugaveg.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.