Klettagarðar 4

Verknúmer : BN044193

674. fundur 2012
Klettagarðar 4, mæliblað
Faxaflóahafnir sf. óska eftir samþykki á breytingu mæliblaðs og skráningu lóðar. Lóðin Klettagarðar nr. 4 er stækkuð miðað við eldri lóð og er stækkunin í samræmi við samþykkt skipulagsstjóra þann 6. janúar 2012 og staðfest með auglýsingu í B- stjórnartíðindum þann 7 febrúar 2012. Breytingin felur í sér að lóðin er stækkuð um 1.744 m2, lóðin var fyrir breytingu 6.860 m2 og verður eftir breytingu 8.604m2.
Málinu fylgir bréf Faxaflóahafna sf. dags. 27. febrúar 2012.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.