Holtsg.1-3,Bræðrab.30

Verknúmer : BN044101

673. fundur 2012
Holtsg.1-3,Bræðrab.30, Endurnýjun byggingarleyfis BN038828
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038828 þar sem sótt var um að breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 1 við Holtsgötu.
Samþykki meðeigenda ódags. fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


671. fundur 2012
Holtsg.1-3,Bræðrab.30, Endurnýjun byggingarleyfis BN038828
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038828 þar sem sótt var um að breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 1 við Holtsgötu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.