Lágholtsvegur 11

Verknúmer : BN043739

658. fundur 2011
Lágholtsvegur 11, (fsp) viðbygging
Spurt er hvar byggja megi 20 ferm. viðbyggingu og gestahús eða bílskúr og hvort hægt sé að kæra synjun á áðurbyggðri verönd við einbýlishúsið Jörfa á lóð nr. 11 við Lágholtsveg.
Samkvæmt skipulagi er heimilt að byggja svalir eða viðbyggingu allt að 20 m2 og kvisti á allt að þriðjungi þakflatar með hliðsjón af verndunarákvæðum.
Vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
Synjun á áðurbyggðri verönd hefur þegar verið kærð.