Grandavegur 47

Verknúmer : BN043631

257. fundur 2011
Grandavegur 47, málskot
Lagt fram málskot Ragnheiðar Hrafnkelsdóttur ódags. vegna fyrirspurnar til byggingarfulltrúa frá 6. september 2011 að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir.

Fyrri afgreiðsla frá 6. september 2011 staðfest.

368. fundur 2011
Grandavegur 47, málskot
Lagt fram málskot Ragnheiðar Hrafnkelsdóttur ódags. varðandi afgreiðslu byggingarfulltrúa frá 6. september 2011 á fyrirspurn að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir.
Vísað til skipulagsráðs.

655. fundur 2011
Grandavegur 47, málskot
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta íbúð í þjónusturými á jarðhæð fjölbýlishúss á lóð nr. 47 við Grandagarð.
Erindi fylgir bréf umsækjanda ódagsett.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.