Vesturberg 138-142

Verknúmer : BN043407

708. fundur 2012
Vesturberg 138-142, Klæðning
Sótt er um leyfi til að klæða austurhlið með sléttri álklæðningu eins og suðurgafl fjölbýlishússins á lóð nr. 138-142 við Vesturberg.
Meðfylgjandi er bréf burðarþolsverkfræðings dags. 5.8. 2012, annað bréf frá verkfræðing þar sem fram kemur líka að húsfundur samþykkti framkvæmdina 30.5. 2012. Sérteikning fylgir sem fylgiskjal.
Gjald kr. 8.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


647. fundur 2011
Vesturberg 138-142, Klæðning
Sótt er um leyfi til að klæða austurhlið með sléttri álklæðningu eins og suðurgafl fjölbýlishússins á lóð nr. 138-142 við Vesturberg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.