Veltusund 3B

Verknúmer : BN043394

649. fundur 2011
Veltusund 3B, (fsp) skyndibitastaður
Spurt er hvort reka megi skyndibitastað í rými 0101 í húsi á lóð nr. 3B við Veltusund.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. júní 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 25. ágúst 2011.

Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 25. ágúst 2011.


361. fundur 2011
Veltusund 3B, (fsp) skyndibitastaður
Á fundi skipulagsstjóra 19. ágúst 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. ágúst 2011 þar sem spurt er hvort reka megi skyndibitastað í rými 0101 í húsi á lóð nr. 3B við Veltusund. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 25. ágúst 2011.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 25. ágúst 2011.

360. fundur 2011
Veltusund 3B, (fsp) skyndibitastaður
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. ágúst 2011 þar sem spurt er hvort reka megi skyndibitastað í rými 0101 í húsi á lóð nr. 3B við Veltusund.
Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins.

647. fundur 2011
Veltusund 3B, (fsp) skyndibitastaður
Spurt er hvort reka megi skyndibitastað í rými 0101 í húsi á lóð nr. 3B við Veltusund.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.