Köllunarklettsvegur 1

Verknúmer : BN043382

646. fundur 2011
Köllunarklettsvegur 1, mæliblað
Faxaflóahafnir sf sækja um uppfærslu á mæliblaði 1.329.801 vegna lóðar nr. 1 við Köllunarklettsveg. Breytingin felur í sér að lóðin minnkar í suðaustur horni og austurhlið um 125 fermetra en stækkar til vesturs og suðurs um sama fermetrafjölda. Lóðarstærð er óbreytt eftir breytingu eða 16.088 fermetra. Málinu fylgir bréf Faxaflóahafna dags. 25. júlí 2011, fyrrnefnt breytt mæliblað og yfirlitsblað lóða.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.