Leifsgata 16

Verknúmer : BN043349

647. fundur 2011
Leifsgata 16, (fsp) svalalokun og endurskipulagning
Spurt er hvort leyfi fengist til að loka svölum rýmis 0101 og útbúa sólstofu með léttum stiga niður í garð og endurskipuleggja kjallarann svo innangengt verði frá íbúð 0101 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 16 við Leifsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. júlí 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. ágúst 2011.

Neikvætt vegna byggingu sólstofu en jákvætt að byggja stiga niður í garð með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Sækja þarf um byggingarleyfi.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.


359. fundur 2011
Leifsgata 16, (fsp) svalalokun og endurskipulagning
Á fundi skipulagsstjóra 5. ágúst 2011 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júlí 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að loka svölum rýmis 0101 og útbúa sólstofu með léttum stiga niður í garð og endurskipuleggja kjallarann svo innangengt verði frá íbúð 0101 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 16 við Leifsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. ágúst 2011.

Neikvætt að byggja sólstofu með vísan til umsagnar skipulagsstjóra, en ekki eru gerðar athugasemdir við stiga út í garð. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar hún berst.

358. fundur 2011
Leifsgata 16, (fsp) svalalokun og endurskipulagning
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júlí 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að loka svölum rýmis 0101 og útbúa sólstofu með léttum stiga niður í garð og endurskipuleggja kjallarann svo innangengt verði frá íbúð 0101 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 16 við Leifsgötu.

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins.

645. fundur 2011
Leifsgata 16, (fsp) svalalokun og endurskipulagning
Spurt er hvort leyfi fengist til að loka svölum rýmis 0101 og útbúa sólstofu með léttum stiga niður í garð og endurskipuleggja kjallarann svo innangengt verði frá íbúð 0101 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 16 við Leifsgötu.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.