Sóleyjargata 27

Verknúmer : BN043319

645. fundur 2011
Sóleyjargata 27, (fsp) innri breytingar
Spurt er hvort innrétta megi 8 gistiherbergi og eina íbúð í einbýlishúsi á lóð nr. 27 við Sóleyjargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar frá 22. júlí 2011 fylgir erindinu

Vísað er til umfjöllunar byggingarleyfis BN043343.

357. fundur 2011
Sóleyjargata 27, (fsp) innri breytingar
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júlí 2011 þar sem spurt er hvort innrétta megi gistiheimili og eina íbúð í einbýlishúsi á lóð nr. 27 við Sóleyjargötu.

Ákvæði Aðalskipulags Reykjavíkur útilokar ekki að veitt verði leyfi til rekstrar gistiheimila á íbúðarsvæðum að uppfylltum þeim skilyrðum að starfsemin valdi ekki óþægindum vegna lyktar, hávaða eða óeðlilega mikillar umferðar. Í ljósi þess eru ekki gerðar skipulagslegar athugasemdir á þessu stigi máls við fyrirhugaða breytta notkun en bent skal á að byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt og geta athugasemdir nágranna leitt til þess að umsókninni verði hafnað. Einnig er bent á að embætti byggingarfulltrúa gerir tæknilegar athugasemdir við íveruherbergi í kjallara, fullnægjandi upplýsingar um bílastæðabókhald lóðarinnar liggur ekki fyrir auk þess sem upplýsingar um flokkun gististaðar samkvæmt lögum nr. 85/2007 liggur ekki fyrir.

644. fundur 2011
Sóleyjargata 27, (fsp) innri breytingar
Spurt er hvort innrétta megi 8 gistiherbergi og eina íbúð í einbýlishúsi á lóð nr. 27 við Sóleyjargötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
Ekki verður samþykkt að gera ný íbúðarherbergi í kjallara.