Laufásvegur 2

Verknúmer : BN043285

644. fundur 2011
Laufásvegur 2, (fsp) skyndibitastaður
Spurt er hvort leyfi fengist til að innrétta skyndibitastað/kaffihús í flokki I í kjallara hússins á lóð nr. 2 við Laufásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. júlí 2011 fylgir erindinu

Jákvætt
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við fyrirspurnina en bent er á að athuga verður hvort húsnæðið uppfylli ákvæði byggingar-og heilbrigðisreglugerða.


356. fundur 2011
Laufásvegur 2, (fsp) skyndibitastaður
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. júlí 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að innrétta skyndibitastað/kaffihús í flokki I í kjallara hússins á lóð nr. 2 við Laufásveg.

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við fyrirhugaða landnotkun en bent skal á að húsnæðið uppfyllir ekki kröfur byggingarreglugerðar.

643. fundur 2011
Laufásvegur 2, (fsp) skyndibitastaður
Spurt er hvort leyfi fengist til að innrétta skyndibitastað/kaffihús í flokki I í kjallara hússins á lóð nr. 2 við Laufásveg.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.