Elliðavatn bækistöð

Verknúmer : BN043277

642. fundur 2011
Elliðavatn bækistöð, mæliblað
Landupplýsingadeild, Framkvæmda- og eignasvið, bendir á að stærð lóðar, landnúmer 173485, nefnd "Elliðavatn bækistöð", er skráð 0.0 fermetrar í Þjóðskrá Íslands, sbr. meðsent A4 ljósrit prentað úr Þjóðskrá Íslands. Talið er líklegast að upphaflega hafi þessi lóð, landnúmer 173485, komið úr jörðinni Elliðavatn, landnúmer 113489. Mæliblað hefur nú verið gefið út af lóðinni, landnúmer 173485, sbr. meðsent mæliblað, staðgreinir 8.1--.-62, útgefið 31. maí 2011, þar kemur fram að lóðin, landnúmer 173485, er 3428 fermetrar. Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans við því að þetta sé lagfært í Þjóðskrá Íslands, þannig að stærð lóðarinnar, landnúmer 173485, verði skráð 3428 fermetrar þar.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.