Hverfisgata 18

Verknúmer : BN043268

647. fundur 2011
Hverfisgata 18, (fsp) lækka gólf í kjallara
Spurt er hvort lækka megi gólf í kjallara og fjölga þannig gestum í veitingahúsinu á 1. hæð og í kjallara hússins á lóð nr. 18 við Hverfisgötu.
Umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 22. júlí 2011 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 9. ágúst 2011 fylgja erindinu.
Endanleg afstaða til erindisins verður ekki tekin vegna málsins fyrr en bætt hefur verið úr athugasemdum sem fram koma í bókunum eldvarnaeftirlits frá 12. ágúst 2011 og byggingarfulltrúa frá 10. ágúst 2011.

642. fundur 2011
Hverfisgata 18, (fsp) lækka gólf í kjallara
Spurt er hvort lækka megi gólf í kjallara og fjölga þannig gestum í veitingahúsinu á 1. hæð og í kjallara hússins á lóð nr. 18 við Hverfisgötu.
Frestað.
Áður en afstaða er tekin til erindisins skal fyrirspyrjandi leggja fram umsagnir Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur vegna málsins.