Borgartún 20

Verknúmer : BN043228

641. fundur 2011
Borgartún 20, br. á áður samþykktu leyfi BN041935, kvistur á þak
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN041935 dags. 7. sept. 2010 þannig að í staðinn fyrir þakglugga með svalahurð verður komið fyrir kvistum með svalahurð út á neyðarstiga á húsnæðinu á lóð nr. 20 við Borgartún.
Stækkun: 3,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 272

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.