Ásvallagata 75

Verknúmer : BN042946

641. fundur 2011
Ásvallagata 75, svalalokun
Sótt er um leyfi til að byggja svalalokun úr áli og gleri yfir svalir á 2. hæð einbýlishússins á lóð nr. 75 við Ásvallagötu.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Ásvallagötu 56, 58, 73 og 77 og Hringbrautar 102 og 104 dags. 13. mars 2011, minnisblöð verkfræðistofunnar Mannvit v/svalalokunar dags. 27. janúar og 1. 2. og 4. febrúar 2011 og yfirlýsing frá PGV Framtíðarform ehf. ódagsett.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. júní 2011 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 11. maí og til og með 9. júní 2011. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður fram tölvupóstur Júlíusar Þorfinnssonar dags. 27. maí 2011 þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið.
Stærð: 7,9 ferm., 17,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 1.392

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


353. fundur 2011
Ásvallagata 75, svalalokun
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. maí 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalalokun úr áli og gleri yfir svalir á 2. hæð einbýlishússins á lóð nr. 75 við Ásvallagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 11. maí til og með 9. júní 2011. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður fram tölvupóstur Júlíusar Þorfinnssonar dags. 27. maí 2011 þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið.
Stærð: 7,9 ferm., 17,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 1.392

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


635. fundur 2011
Ásvallagata 75, svalalokun
Sótt er um leyfi til að byggja svalalokun úr áli og gleri yfir svalir á 2. hæð einbýlishússins á lóð nr. 75 við Ásvallagötu.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Ásvallagötu 56, 58, 73 og 77 og Hringbrautar 102 og 104 dags. 13. mars 2011, minnisblöð verkfræðistofunnar Mannvit v/svalalokunar dags. 27. janúar og 1. 2. og 4. febrúar 2011 og yfirlýsing frá PGV Framtíðarform ehf. ódagsett.
Stærð: 7,9 ferm., 17,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 1.392

Frestað.
Málið er í grenndarkynningu. Þau samþykki sem fylgja umsókn eru dagsett fyrir daga umsóknar og því ekki trygg.


348. fundur 2011
Ásvallagata 75, svalalokun
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 3. maí 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalalokun úr áli og gleri yfir svalir á 2. hæð einbýlishússins á lóð nr. 75 við Ásvallagötu.
Stærð: 7,9 ferm., 17,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 1.392

Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 73 og 77.

633. fundur 2011
Ásvallagata 75, svalalokun
Sótt er um leyfi til að byggja svalalokun úr áli og gleri yfir svalir á 2. hæð einbýlishússins á lóð nr. 75 við Ásvallagötu.
Stærð: 7,9 ferm., 17,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 1.392

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar dags.19.apríl 2011.