Ljósvallagata 10

Verknúmer : BN042940

641. fundur 2011
Ljósvallagata 10, svalir 2. hæð
Sótt er um leyfi til að byggja stálsvalir á bakhlið 2. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 10 við Ljósvallagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra þann 22. júní 2011 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 11. maí til og með 9. júní 2011. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 15. júlí 2010.
Gjald kr. 8.000 + 8.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.


353. fundur 2011
Ljósvallagata 10, svalir 2. hæð
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. maí 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja stálsvalir á bakhlið 2. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 10 við Ljósvallagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 11. maí til og með 9. júní 2011. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 15. júlí 2010.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


635. fundur 2011
Ljósvallagata 10, svalir 2. hæð
Sótt er um leyfi til að byggja stálsvalir á bakhlið 2. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 10 við Ljósvallagötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 15. júlí 2010.
Gjald kr. 8.000

Frestað.
Grenndarkynningu enn ólokið.


348. fundur 2011
Ljósvallagata 10, svalir 2. hæð
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. maí 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja stálsvalir á bakhlið 2. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 10 við Ljósvallagötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 15. júlí 2010.
Gjald kr. 8.000

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ljósvallagötu 8 og 12

633. fundur 2011
Ljósvallagata 10, svalir 2. hæð
Sótt er um leyfi til að byggja stálsvalir á bakhlið 2. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 10 við Ljósvallagötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 15. júlí 2010.
Gjald kr. 8.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynning. Vísað er til uppdráttar nr. 1.02.01 dags. 18. mars 2011