Hringbraut - Héðinsvöllur

Verknúmer : BN042867

238. fundur 2011
Hringbraut - Héðinsvöllur, friðun, ytra byrði og garðveggir
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 30. mars 2011 ásamt bréfum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 17. og 25. mars 2011, en í bréfunum er lýst friðun á ytra byrði leikvallarskýlis og garðveggjum umhverfis Héðinsvöll við Hringbraut.