Sjafnargata 4

Verknúmer : BN042855

633. fundur 2011
Sjafnargata 4, (fsp) bílskúr
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 4 við Sjafnargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. apríl 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. apríl 2011.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Sækja þarf um byggingarleyfi og því fylgi samþykki meðlóðarhafa og aðliggjandi lóða.


347. fundur 2011
Sjafnargata 4, (fsp) bílskúr
Á fundi skipulagsstjóra 15. apríl 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. apríl 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 4 við Sjafnargötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. apríl 2011.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

346. fundur 2011
Sjafnargata 4, (fsp) bílskúr
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. apríl 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 4 við Sjafnargötu.

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins.

631. fundur 2011
Sjafnargata 4, (fsp) bílskúr
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 4 við Sjafnargötu.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.