Klapparstígur 1-7

Verknúmer : BN042718

627. fundur 2011
Klapparstígur 1-7, endurnýjun á erindi BN036039
Sótt er um leyfi til þess að endurnýja erindið BN036039 dags. 26. feb. 2008 þar sem sótt var um að setja glerlokanir á svalir og skyggni yfir innganga fjölbýlishúsanna nr. 5 og 5A á lóð nr. 1-7 við Klapparstíg.
Stærð: Svalaskýli 93,6 ferm., 232 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 18.560

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.