Pósthússtræti 13-15

Verknúmer : BN042650

627. fundur 2011
Pósthússtræti 13-15, endurnýja BN039611
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN039611 dags. 12. maí 2009, þar sem veitt var leyfi til að breyta eignarhluta 0202 merkt skrifstofa, í tvær íbúðir merktar 0202 og 0203, til að síkka glugga og byggja tvennar svalir á 2. hæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 13 við Pósthússtræti.
Erindi fylgir samþykki nýs eiganda 0301 dags. 2. mars 2011.
Gjald kr. 8.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


625. fundur 2011
Pósthússtræti 13-15, endurnýja BN039611
Sótt er ym leyfi til að endurnýja erindi BN039611 dags. 12. maí 2009, þar sem veitt var leyfi til að breyta eignarhluta 0202 merkt skrifstofa, í tvær íbúðir merktar 0202 og 0203, til að síkka glugga og byggja tvennar svalir á 2. hæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 13 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.