Kleppsvegur 18-24

Verknúmer : BN042544

621. fundur 2011
Kleppsvegur 18-24, nr. 24 opna á milli eldhúss og stofu
Sótt er um leyfi til að brjóta 150/210 cm. gat í steyptan vegg og opna milli eldhúss og stofu í íbúð 04-0202 í fjölbýlishúsi nr. 24 á lóð nr. 18-24 við Kleppsveg.
Meðfylgjandi er samþykki burðarvirkishönnuðar dags. 29. nóvember 2010 og bréf formanns húsfélagsins dags. 1. nóvember 2010.
Gjald kr. 8.800

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.