Vesturberg 2-6

Verknúmer : BN042504

619. fundur 2011
Vesturberg 2-6, klæða tvo veggi
Sótt er um leyfi til að klæða vestur- og suðurgafl með sléttum álplötum á álgrind með 50mm steinull og gluggar verða endurnýjaðir í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 2-6 við Vesturberg.
Fundargerð húsfélags Vesturberg 2-6 dags. 11. okt. 2010 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 11. jan. 2011 fylgja.
Gjald kr. 8.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.