Sólvallagata 48

Verknúmer : BN042425

619. fundur 2011
Sólvallagata 48, (fsp) svalir
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á 2. hæð bakhúss (mhl. 02) við fjölbýlishúsið á lóð nr. 48 við Sólvallagötu.
Erindi fylgir umboð eiganda 02 0102 dagsett 22. nóvember 2010 og samþykki meðeigenda í matshluta dagsett í nóvember 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. janúar 2011 og umsögn skipulagsstjóra dags. 12. janúar 2011.

Jákvætt.
Að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi á eigin kostnað sem grenndarkynna verður. Að öðru leyti er vísað í umsögn skipulagsstjóra dags. 12. janúar 2011.


333. fundur 2011
Sólvallagata 48, (fsp) svalir
Á fundi skipulagsstjóra 6. janúar 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. desember 2010 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á 2. hæð bakhúss (Mhl. 02) við fjölbýlishúsið á lóð nr. 48 við Sólvallagötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. janúar 2011.
Erindi fylgir umboð eiganda 02 0102 dagsett 22. nóvember 2010 og samþykki meðeigenda í matshluta dagsett í nóvember 2010
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Tillagan verður grenndarkynnt eða auglýst þegar hún berst.

332. fundur 2011
Sólvallagata 48, (fsp) svalir
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. desember 2010 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á 2. hæð bakhúss (Mhl. 02) við fjölbýlishúsið á lóð nr. 48 við Sólvallagötu.
Erindi fylgir umboð eiganda 02 0102 dagsett 22. nóvember 2010 og samþykki meðeigenda í matshluta dagsett í nóvember 2010
Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins.

617. fundur 2010
Sólvallagata 48, (fsp) svalir
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á 2. hæð bakhúss (Mhl. 02) við fjölbýlishúsið á lóð nr. 48 við Sólvallagötu.
Erindi fylgir umboð eiganda 02 0102 dagsett 22. nóvember 2010 og samþykki meðeigenda í matshluta dagsett í nóvember 2010
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.