Öldugata 13

Verknúmer : BN042326

618. fundur 2011
Öldugata 13, viðbygging
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu garðmegin úr steinsteypu við kjallara, 1. hæð og sem svalir á 2. hæð og koma fyrir þrem þakgluggum, jafnframt er gerð grein fyrir frekari áformum um byggingu bílskúrs við einbýlishús á lóð nr. 13 við Öldugötu.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 15. nóv. 2010, ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. janúar 2010. Kynning stóð yfir frá 2. desember 2010 til og með 31. desember 2010. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir: Stækkun íbúðarhúss samtals - 28,1 ferm., 84,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.507
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


332. fundur 2011
Öldugata 13, viðbygging
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. nóvember 2010 þar sem sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu garðmegin úr steinsteypu við kjallara, 1. hæð og sem svalir á 2. hæð og koma fyrir þrem þakgluggum, jafnframt er gerð grein fyrir frekari áformum um byggingu bílskúrs við einbýlishús á lóð nr. 13 við Öldugötu. Kynningin stóð yfir frá 2. desember 2010 til og með 31. desember 2010. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 15. nóvember 2010
Stærðir: Stækkun íbúðarhúss samtals - 28,1 ferm., 84,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.507

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


328. fundur 2010
Öldugata 13, viðbygging
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. nóvember 2010 þar sem sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu garðmegin úr steinsteypu við kjallara, 1. hæð og sem svalir á 2. hæð og koma fyrir þrem þakgluggum, jafnframt er gerð grein fyrir frekari áformum um byggingu bílskúrs við einbýlishús á lóð nr. 13 við Öldugötu.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 15. nóvember 2010
Stærðir: Stækkun íbúðarhúss samtals - 28,1 ferm., 84,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.507
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Öldugata 11, 12, 14 og 15, Ægisgötu 27 ásamt Túngötu 22 og 24.

613. fundur 2010
Öldugata 13, viðbygging
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu garðmegin úr steinsteypu við kjallara, 1. hæð og sem svalir á 2. hæð og koma fyrir þrem þakgluggum, jafnframt er gerð grein fyrir frekari áformum um byggingu bílskúrs við einbýlishús á lóð nr. 13 við Öldugötu.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 15. nóv. 2010
Stærðir: Stækkun íbúðarhúss samtals - 28,1 ferm., 84,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.507
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.