Urðarstígur 12

Verknúmer : BN042233

609. fundur 2010
Urðarstígur 12, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta mörkum lóðarinnar Urðarstígs 12 eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar dags. 20. október 2010. Við breytinguna minnkar lóðin Urðarstígur 12 (landnr.102277) úr 260 m2 í 240 m2 og borgarland (landnr. 218177) stækkar um 20 m2. Sbr. deiliskipulag sem samþykkt var í skipulagsráði 4. nóvember 2009 og í Borgarráði 14. ágúst 2009. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins var birt í B-deild stjórnartíðinda 3. febrúar 2010.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsing um breytt lóðamörk.