Selvogsgrunn 14

Verknúmer : BN042210

611. fundur 2010
Selvogsgrunn 14, (fsp) byggja bílskúr
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr vestanmegin við parhúsið á lóð nr. 14 við Selvogsgrunn.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. nóvember 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 5. nóvember 2010.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. einnig umsögn skipulagsstjóra.


325. fundur 2010
Selvogsgrunn 14, (fsp) byggja bílskúr
Á fundi skipulagsstjóra 29. október 2010 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. október 2010 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr vestanmegin við parhúsið á lóð nr. 14 við Selvogsgrunn. Erindinu var vísað til umsagnar og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 5. nóvember 2010.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar hún berst.

324. fundur 2010
Selvogsgrunn 14, (fsp) byggja bílskúr
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. október 2010 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr vestanmegin við parhúsið á lóð nr. 14 við Selvogsgrunn.
Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins.

609. fundur 2010
Selvogsgrunn 14, (fsp) byggja bílskúr
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr vestanmegin við parhúsið á lóð nr. 14 við Selvogsgrunn.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.