Skólastræti 1 - Þingholtsstræti 2-4

Verknúmer : BN042148

606. fundur 2010
Skólastræti 1 - Þingholtsstræti 2-4, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að sameina lóðirnar Skólastræti 1 og Þingholtsstræti 2-4 eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 4. október 2010. Lóðin Skólastræti 1 er 529 m2 og lóðin Þingholtsstræti 2-4 er 200 m2, við sameininguna verður lóðin 729 m2 að stærð. Sbr. samþykkt skipulagsráðs 7. júlí 2010, og auglýsingu í B-deild stjórnartíðinda 28. september 2010. Byggingarfulltrúi leggur til að sameinuð lóð verði skráð nr. 2-4 við Þingholtsstræti.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsing um breytt lóðamörk.