Skaftahlíð 5

Verknúmer : BN042056

608. fundur 2010
Skaftahlíð 5, nýjar svalir á rishæð
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 3. hæð (rishæð) inndregnar í þak á steyptri plötu fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Skaftahlíð.
Meðfylgjandi á teikningu er samþykki meðeigenda og nágranna á nr. 3, ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. október 2010. Kynning stóð yfir frá 30. september 2010 til og með 27. október 2010 en þar sem samþykki hagsmunaaðila móttekið 12. október 2010 liggur fyrir er erindið nú lagt fram að nýju.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


322. fundur 2010
Skaftahlíð 5, nýjar svalir á rishæð
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. september 2010 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 3. hæð (rishæð) inndregnar í þak á steyptri plötu fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Skaftahlíð. Kynningin stóð yfir frá 30. september 2010 til og með 27. október 2010 en þar sem samþykki hagsmunaaðila móttekið 12. október 2010 liggur fyrir er erindið nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


319. fundur 2010
Skaftahlíð 5, nýjar svalir á rishæð
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. september 2010 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 3. hæð (rishæð) inndregnar í þak á steyptri plötu fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Skaftahlíð.
Meðfylgjandi á teikningu er samþykki meðeigenda og nágranna á nr. 3.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Skaftahlíð 3 ásamt Bólstaðarhlíð 4 og 6.

604. fundur 2010
Skaftahlíð 5, nýjar svalir á rishæð
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 3. hæð (rishæð) inndregnar í þak á steyptri plötu fjölbýlishússins á lóð nr. 5 við Skaftahlíð.
Meðfylgjandi á teikningu er samþykki meðeigenda og nágranna á nr. 3.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað er til uppdráttar dags. 13. september 2010.