Lambhagavegur 29

Verknúmer : BN042051

603. fundur 2010
Lambhagavegur 29, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðarmörkum lóðarinnar Lambhagavegur 29, landnúmer 208854, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 30. ágúst 2010. Lóðin er 9027 m2, bætt við lóðina 2437 m2 af borgarlandi (landnúmer 218177), lóðin verður þá 11464 m2. Sbr. samþykkt skipulagsráðs 21. apríl 2010 og samþykkt borgarráðs 29. apríl 2010.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.