Vesturgata 40

Verknúmer : BN042012

604. fundur 2010
Vesturgata 40, (fsp) breytt notkun
Spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi innanhúss, skipta íbúð á efri hæðum í tvær, svalir á austurgafli, innrétta íbúð í verslunarhúsnæði á 1. hæð og innrétta vinnustofu í kjallara íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 40 við Vesturgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 17. sept. 2010 fylgir erindinu.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum með vísan til útskriftar skipulagsstjóra frá 17. sept. 2010 og athugasemda byggingarfulltrúa á fyrirspurnarblaði, enda verði sótt um byggingarleyfi.


318. fundur 2010
Vesturgata 40, (fsp) breytt notkun
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. september 2010 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi innanhúss, skipta íbúð á efri hæðum í tvær, svalir á austurgafli, innrétta íbúð í verslunarhúsnæði á 1. hæð og innrétta vinnustofu í kjallara íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 40 við Vesturgötu.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

603. fundur 2010
Vesturgata 40, (fsp) breytt notkun
Spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi innanhúss, skipta íbúð á efri hæðum í tvær, svalir á austurgafli, innrétta íbúð í verslunarhúsnæði á 1. hæð og innrétta vinnustofu í kjallara íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 40 við Vesturgötu.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.