Hæðarsel 3

Verknúmer : BN041960

601. fundur 2010
Hæðarsel 3, breytingar á nýsamþykktum aðaluppdráttum
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi BN041626 dags. 29. júní 2010. Breytingar fela í sér að steyptri þakplötu/loftaplötu verði sleppt og loft verði hallandi í viðbyggingunni á einbýlishúsinu á lóð nr. 3 við Hæðarsel.
Bréf frá hönnuði dags. 24. ágúst 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.