Mjölnisholt 12-14

Verknúmer : BN041943

601. fundur 2010
Mjölnisholt 12-14, endurnýjun byggingarleyfis BN039980
Sótt er um endurnýjun byggingarleyfis nr. BN039980 dags. 9.6. 2010 sem felst í að breyta byggingarleyfi BN035523 sþ. 24. apríl 2007, þar sem veitt var leyfi til að byggja við og ofan á atvinnuhús á lóð nr. 14 við Mjölnisholt.
Breytingarnar fela í sér að fallið er frá byggingu B-álmu og A-álma verði öll innréttuð sem hótel, í kjallara verði aðeins bílageymslur en aukarými verði óuppfyllt, aflokað loftræst sökkulrými og á þaki bílgeymslu verði skipulagt útivistarsvæði.
Meðfylgjandi er Brunahönnun dags. 20.3. 2007, endurskoðuð 26.5. 2009, Bílastæðabókhald dags. 4. júní 2009. Breytingar á stærðum, samantekt, dags. 4.6. 2009
Stærðir: Kjallari -2, bílgeymsla 393,6 ferm., lyfta 5,6 ferm., aflokað rými (365,9), kjallari -1, lyfta 22,4 ferm., bílageymsla 674,6 ferm., aflokað rými (85,3 ferm.), 1. hæð 487,4 ferm., 2. hæð 597,2 ferm., 3. og 4., hæð 631,6 ferm., 5. og 6. hæð 430 ferm.,
Samtals eftir breytingu er hótel 3.235,8 ferm. og bílageymsla 1068,2 ferm., 4.304 ferm. og 15767,8 rúmm.
Samtals fyrir breytingu: 7538,7 ferm. og 23867,2 rúmm.
Samtals minnkun 3.234,7 ferm., og 8.099,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.213.882
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.